Brandarar

Mun sakna hennar.

Sunnudagur, 05. september 2010 06:08

Nú er það slæmt Lýður sagði Gunnsteinn, konan hótar að fara frá mér ef ég hætti ekki í golfinu. Nú er illt í efni. Það segir þú satt, ég á eftir að sakna hennar
 

Slys.

Laugardagur, 04. september 2010 05:36

Þú braust bara stafinn þinn á hausnum á Þórólfi? Það var hryllilegt slys. Afhverju segir þú það? Ég gerði mér ekki grein fyrir hvað stafurinn var viðkvæmur. 

Engan óvin

Föstudagur, 03. september 2010 05:36

Ég er orðinn níutíu og tveggja ára sagði tengdapabbi ánægður og veit ekki um neinn sem er illa við mig. Glæsilegt sagði ég, þú hefur þá komist átakalaust í gegnum lífið? Segi það ekki, þeir sem höfðu horn í síðu minni eru allir dauðir.
 

Niðurdreginn.

Fimmtudagur, 02. september 2010 05:36

Afhverju ertu svona niðurdreginn á svipinn Sighvatur? Það er alltaf verið að núa mér um nasir að ég sé andfélagslega sinnaður. Skiptir það svo miklu máli ? Já ég er ekki andfélagslega sinnaður mér leiðist bara fólk.

Bölvaðir okrarar.

Miðvikudagur, 01. september 2010 05:36

Tveir Skotar voru í fjallgöngu þegar annar þeirra féll fram af bjargbrúninni . Hann náði taki á hríslu og kallaði til vinar síns og bað hann að hlaupa niður í þorpið og ná í reipi

Lesa nánar: Bölvaðir okrarar.

 

Síða 1 af 406

«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Statistics

Meðlimir : 27
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921762

Bíll vikunnar

  • IMG_0145 Diamond Vörubíll

    Diamond árgerð 1931 einn af þungaflutninga bílum fortíðar,

    Nánar...
  • 1949LincolnLincoln 1949.

    Eins og allir vita þá er Cadillac flaggskip General Motors og Lincoln flaggskip Ford..

    Nánar...
  • Borgward_isabella_coupe_1955-1961Borgward Isabella coupe 1958

    Borgward Isabella bílarnir voru framleiddir á árunum 1956-1962 en þá var fyrirtækið keyrt í gjaldþrot ,

    Nánar...
Höfundarréttur © 2010 Blaðið. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.