Nýall

Miðilsfundir

Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 11:24

Á miðilsfundum kemur oft fjöldi aðila fram og eru samræður oft með galsa þó alvaran sé undirliggjandi og fræðslan í fyrirrúmi . Samand við þá sem hafa flutt um set og þær aðstæður þeirra  sem við er að etja, er mjög fræðandi og smá saman er okkur að takast að nálgast heilstæðari mynd af því sem við tekur og þá möguleika sem búa í framtíðinni. Máltækið líkur sækir líkan heim virðist í fullu gildi, áhugaefni tengja aðila og kynstofnar leita nokkkuð til sinna og að sínum og aðstæðum sem þeir bjuggu við. 

Lesa nánar: Miðilsfundir

 

FÁS.

Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 10:56

Félag áhugamanna um stjörnulíffræði FÁS er með starfsemi sína á þriðjudagskvöldum að Álfhólsvegi  í Kópavogi. Um sinn er hist einu sinni í viku á orku og miðilsfundum en efni standa til um stóraukna starfsemi. Starfandi miðill er Sigríður Guðmundsdóttir en Eiríkur og Guðmundur Jóhann voru mjög virkir í miðiilsstarfinu í tugi ára. Starfið er mjög krefjandi og þær stundir koma að menn draga sig í hlé en mæta svo endurnærðir til leiks á ný.

Draumar

Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 10:50

Ingólfur Sigurðsson ritaði góða grein  í mbl bloggið 23 febrúar 2008 , hér er örstutt endurtekning.

Ég fagna því mjög að fram sé komin kenningin um samhliða alheima, og loksins er farið að tala um þetta hér á Íslandi nokkuð meira en áður.
Þegar dr. Helgi Pjeturss gaf út Nýala sína á árunum 1922 - 1947 voru þessi vísindi ekki komin fram, og því átti fólk erfiðara með að skilja margt í kenningum hans, en það sem mörgum þótti einna erfiðast að skilja var kenning hans um drauma, þess efnis að sérhver draumur sé lífsamband,

Lesa nánar: Draumar

 

Starfandi félög

Þriðjudagur, 13. október 2009 17:08

Félag áhugamanna um stjörnulíffræði. Miðilsfundir orkufundir kynningar á Nýal.

Félag Nýalssinna Álfhólsveg 121 Kópavogi. Miðilsfundir orkufundir kynningar á Nýal.

Heimspekistofa Helga Pjeturs. Heldur utan um muni og lýsingar sem tilheyra starfi og Heimspeki Helga Pjeturs.

Hér vantar link fyrir hvert félag.

Rit Helga Pjeturs

Þriðjudagur, 29. september 2009 11:18

Dr.Helgi Pjeturss (31. mars 1872 – 28. janúar 1949)  var íslenskur jarðfræðingur og dulvísindamaður

Á síðari hluta ævi sinnar hneigðist Helgi að heimspeki, stjörnulíffræðii og dulvísindum og skóp kenningu sem sneri að því að maðurinn væri jafnefnislegur á öðrum plánetum eftir dauða sinn, og lifði á slíkum hnetti sem samsvaraði andlegu þroskastigi viðkomandi. Draumar okkar hér á jörðinni væru auk þess sýn inn í líf á öðrum plánetum. Helstu bækur Helga Pjeturss voru

  • Nýall: nokkur íslensk drög til heimsfræði og líffræði - árið 1919
  • Ennnýall: nokkur íslensk drög til skilnings á heimi og lífi - 1929
  • Framnýall: björgun mannkynsins og aðrir aldaskiftaþættir - 1941
  • Sannnýall: saga Frímanns eftir að hann fluttist á aðra jörð og aðrir Nýalsþættir 1943
  • Þónýall: íslensk vísindi og framtíð mannkynsins og aðrir Nýalsþættir
  • Viðnýall   1955
  • Lesa nánar: Rit Helga Pjeturs

     

    Úr Nýal

    Föstudagur, 11. september 2009 10:20

    Það sem þúsundir milljóna hafa haldið vera líf í andaheimi eða goðheimi, er lífið á öðrum hnöttum. Þessi hugsun, sem segja má með svo fáum orðum, verður upphaf meiri breytinga til batnaðar á högum mannkynsins, en orðið hafa um allar aldir áður.

    ( Upphafsorð Nýals )
    Lífsambandið milli hnattanna er við verur sem lengra eru komnar í góðu, við verur sem lengra eru komnar í illu og við þær, sem líkt er komið fyrir. Þau mannkyn sem eru á Vítisbrautinni , þekkja ekki þetta samband, vita ekki eðli drauma, vita ekki hvernig stendur á vitrunum. Hjá slíkum mannkynjum skapast trúarbrögð af fjarskynjunum og hugmyndum,

    Lesa nánar: Úr Nýal

    Stjörnulíffræði

    Miðvikudagur, 09. september 2009 21:23

    Hvað er stjörnulíffræði ? Hún er meginkjarni heimsspeki kenninga dr.Helga Pjeturss. Í Nýal eru þeim fræðum gerð ítarleg skil. Kenningar Nýals eru byggðar á traustri undirstöðu náttúruvísindanna. Þær eru stórkostlega mikilvægur viðauki við þann þekkingarforða sem mannkynið hefur safnað sér á liðnum öldum, og mun valda aldarhvörfum , ef þeginn verður.

    Úrdráttur úr mbl 12 des 1991.

    Það vandast nokkuð málið, þegar að þessu kemur. Ástæðan er ósköp einföld. Kenningar dr. Helga kveða á um hluti, sem ekki virðist með nokkru móti hægt að ganga úr skugga um. Hann heldur því til dæmis fram, að í draumum ferðumst við til annarra hnatta og íbúar annarra hnatta, séu að tala til okkar í gegnum miðla.

    Lesa nánar: Stjörnulíffræði

     

    Statistics

    Meðlimir : 27
    Efni : 3990
    Vefhlekkir : 6
    Innlit : 1921783

    Bíll vikunnar

    • IMG_0145 Diamond Vörubíll

      Diamond árgerð 1931 einn af þungaflutninga bílum fortíðar,

      Nánar...
    • 1949LincolnLincoln 1949.

      Eins og allir vita þá er Cadillac flaggskip General Motors og Lincoln flaggskip Ford..

      Nánar...
    • Borgward_isabella_coupe_1955-1961Borgward Isabella coupe 1958

      Borgward Isabella bílarnir voru framleiddir á árunum 1956-1962 en þá var fyrirtækið keyrt í gjaldþrot ,

      Nánar...
    Höfundarréttur © 2010 Blaðið. Öll réttindi áskilin.
    Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.