Kaiser Darren 1955
Laugardagur, 31. júlí 2010 07:33
Við höfum áður minnst á Kaiser Darren bílinn hér á vefnum. Snillingurinn Howard ´Dutch' hannaði bílinn og ætlaði honum að komast inn á framleiðsluferlið sem Henry J bíllinn skildi eftir þegar hans tíma lauk.
Yfirbyggingin var úr fiberglass og sett saman úr fjórum hlutum. Framendi, afturendi og svo hurðirnar tvær. Fyrsti bíllinn árgerð 1954 kom á markað með 90 hestafla 6 strokka línuvél og af honum voru framleiddir 50 bílar. Vélavalið breyttist 1955 en þá prýddi V8 vélin úr Cadillac Eldorado gripinn en hún skilaði 305 hestöflum. Árið 1956 voru hestöflin sem Cadillac vélin skilaði orðin 305 , árið 1957 voru hestöflin 325 og árið 1958 voru hestöflin orðin 335. Ekki ber tölum saman um þann fjölda sem framleiddur var af Darren bílnum en síðustu tölur sem skrifari datt um voru 435 bílar framleiddir og af þeim eru enn 300 til í sýningarhæfu ástandi.
Statistics
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921783



