Alfa Romeo Spider 1966
Föstudagur, 30. júlí 2010 07:33
Alfa Romeo Spider var fyrst kynntur sem hugmyndabíll á bílasýningunni í Turin árið 1961,Pinin Farina hafði hannað útlitið og almenningur tók hugmyndinni mjög vel.
Árið 1965 litu fyrstu bílarnir ljósið en framleiðslan hófst af krafti árið 1966 en hann hafði verið kynntur fyrir almenningi á stóru bílasýninguni í Genf 1966. Mikil eftirspurn var eftir bílnum og var Spyder bíllinn við líði til ársins 1993 en þá var það fjórða kynslóðin af Spyder bílnum sem kvaddi að sinni. Vélin var 1570 rs Twin Cam fjögurra strokka og skilaði 109 hestöflum . Ekki slakt þar sem bíllinn vóg ekki nema 996 kíló. Hægt var að fá bílinn með 1,4 lítra vél og árið 1967 kom hann á markað sem Spider Veloce og þá með 1750 rs vél sem skilaði 118 hestöflum. Árið 1970 kom önnur kynslóð Spiderbílanna á markað og var hann framleiddur til ársins 1983, árið 1982 kom þriðja kynslóðin fyrir augu almennings og var hann í framleiðslu til ársins 1990. Miklar breytingar voru í farvatninu og lauk sögunni með tilkomu fjórðu kynslóðar Alfa Romer Spider en hún var framleidd til ársins 1993.
Statistics
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921772




