Hundrað þúsund ef handklæðið fellur
Föstudagur, 13. febrúar 2009 07:01
Eiginmaðurinn fer í sturtu rétt í þann mund, er konan hans er að ljúka sinni og dyrabjallan hringir.Konan vefur um sig handklæði og hleypur til dyra.
Hún opnar hurðina og úti stendur Biggi úr næsta húsi.
Áður en henni tekst að koma upp orði segir Biggi: "Ég gef þér hundraðþúsund ef þú lætur handklæðið falla".
Hún hugsar sig um smá stund og lætur svo handklæðið falla og stendur nakin fyrir framan Bigga. Eftir nokkrar sekúndur lætur Biggi hana fá hundraðþúsund og fer.
Konan vefur handklæðinu aftur utan um sig og fer aftur inn.
Þegar hún kemur inn á bað spyr eiginmaðurinn: "Hver var þetta?"
"Þetta var Biggi í næsta húsi", svarar hún.
"Frábært", segir maðurinn, "nefndi hann eitthvað um þessi hundraðþúsund sem hann skuldar mér?"
Statistics
Meðlimir : 27
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921789
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921789



