Lincoln 1932.
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 07:17
Árið 1932 var Lincoln merkinu furðu gott miðað við ástandið í bandaríkjunum og hélt Lincoln sínu striki og bætti nokkuð í miðað við aðra framleiðendur .
Mæja magnaða
Miðvikudagur, 11. ágúst 2010 06:16
Maja magnaða fór upp á þak á glæsihótelinu sem hún gisti á , sá að það var hæsta byggingin á staðnum skellti sér úr fötunum og fór í sólbað. Eftir nokkra stund kom starfsmaður upp á þakið og sagði þú getur ekki ekki legið hér í sólbaði . Afhverju ekki ? spurði Mæja þetta er hæsta byggingin á staðnum. Veit ég það svaraði starfsmaðurinn , en þú liggur á glerþaki borðsalarins.Kominn úr fríinu?
Þriðjudagur, 10. ágúst 2010 09:11
Þú ert bara kominn heim úr fríinu Ólafur?Já þetta var algjör sneypa allar götur á floti og fólk neyddist til að ferðat um á bátum. Það var því ekkert annað að gera en koma sér heim aftur með hraði. Hvert fóruð þið annars? Við álpuðumst til Feneyja.DeSoto Adventure 1954
Mánudagur, 09. ágúst 2010 07:42
Chrysler samsteypan var mjög áhugasöm um smíði sýningarbíla og kom hvert gullstykkið á fætur öðru frá Ghia yfir hafið fyrstu árin eftir stríð.
Samlokurnar.
Mánudagur, 09. ágúst 2010 06:14
Við hjónin fórum um vestfirði með afkvæmin og kynntum þau fyrir magnaðri fegurð þeirra , Þegar við komum á Látrabjarg gleymdi ég mér aðeins og fór nokkuð nærri brúninni. Yngsti ormurinn kom til mín og spurði hvort hann ætti ekki að halda á samlokunni sem ég var með. Afhverju viltu það spurði ég undrandi? Sko ef þú skyldir detta þá er vont að missa samlokuna með þér svaraði sá bláeygi.Chrysler og Plymouth 1954
Sunnudagur, 08. ágúst 2010 07:42
Sýningarbílarnir sem oftast urðu ekki meir en augnakonfekt, voru margir hverjir smíðaðir á Ítalíu og fluttir til Bandaríkjanna. Allir framleiðendur nýttu sér handlagni og listfengi þeirra og hver glæsivagninn af öðrum gladdi augu gesta á hinum ýmsu sýningum
Skítugur á löppunum
Sunnudagur, 08. ágúst 2010 06:05
Ferðalangarnir voru nýkomnir til Costa de Sol og fóru á ströndina, hrikalega ertu skítugur á fótunum sagði einn við samferðamann sinn. Veit það en við höfðum ekki efni á að koma hingað í fyrra.Chrysler Imperial 1955
Laugardagur, 07. ágúst 2010 07:32
Imperial bíllinn var flaggskip Chrysler samsteypunnar frá árinu 1926.
Það var árið 1926 að Walter P. Chrysler fannst tími til kominn að blanda sér í hóp þeirra stóru og bjóða upp á lúxusbíl frá Chrysler sem gæti keppt við Lincoln frá Ford og Cadillac frá General Motors.
Fleiri greinar...
Síða 8 af 246
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»Statistics
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921789








