Dodge Coronet R/T 1968
Föstudagur, 21. desember 2007 14:39
Chrysler Dodge verksmiðjurnar notuðu tækifærið og settu nokkrar útfærslur á markaðinn þegar Mustang æðið hófst, meðal annars var tveggja dyra Dodge Coronet R/T í spyrnuútgáfu settur í slaginn og vélin sem boðin var með honum var fjögurra hólfa Magnum V/8 sem var 440 cid. Af Dodge Coronet R/T voru framleiddir 10.900 bílar af árgerð 1968 en heildar framleiðsla af Dodge Coronet sem var fáanlegur bæði sem tveggja og fjögurra dyra gerðir var 196.242 bílar. Ford General MOtors og Chrysler áttu auðvelt með að framleiða hinar ýmsu sérgerðir þar sem íhlutir í hinar ýmsu bílgerðir voru fyrir hendi.
Nico Rosberg bjartsýnn
Fimmtudagur, 20. desember 2007 08:10
Nico Rosberg sem framlengdi samning sinnvið Williams Toyota segist trúa því að hann komist á toppinn með Williams því nýi bíllinn lofi góðu. Ferrari liðið segist koma með gjörbreyttan bíl og tæknimenn hafi teygt sig eins langt og reglur FIA leyfi. Red Bull bíllinn sem verður kynntur eftir áramót er sagður vera stórt skref fram á við. Kovalainen er búinn að ráða sig hjá McLaren og segist hafa full vissu fyrir því að jafnræði verði með
Mercury Cougar 1972
Sunnudagur, 16. desember 2007 20:22
Þó blikur væru á lofti og framleiðendur væru farnir að huga að smækkun bíla sinna héldu þeir hjá Mercury sig við stærðina og létu kaupendur sér það vel vel líka. Það er skemmtilegt að fylgjast með þróuninni sem var að hefjast en 1974 var Ford Mustang færður niður í stærð en þeir hjá Mercury létuAf Mercury Cougar árgerð 1972 voru framleiddir um 54.000 bílar.
Mercury Cougar 1969
Föstudagur, 14. desember 2007 12:02
Töluvert hafði verið lagt undir þegar Mercury Cougar kom á markaðinn árið 1977 en það hafði skilað sér í meiri sölu en áætlanir gerðu ráð fyrir. Bíllinn var vel búinn og glæsilegur árið 1968 var vélaúrval aukið og öflugasta V/8 vélin sem boðið var upp á var 427 cub in 390 bhp Cobra árið 1968 seldust 113.726 bílar sem var vel ásættanlegt. Árið 1969 kom bíllinn svo með breytta yfirbyggingu 351 cu in 250 bhp vélin kom í staðinn fyrir 289 cu in vélina og hægt var að sérpanta 429 Boss vélina ef hugur stóð til og efni réðu. Rétt rúmlega 100.000 bílar seldust en nýr ofurbíll var kominn frá Mercury CYCLONE og CYCLONE CJ ,af honum seldust rúmlega 9.100 bílar en tímabil gjörbreyttra aðstæðna var að nálgast.
Mercury Cougar 1967
Fimmtudagur, 13. desember 2007 14:30
Í kjölfar sigurgöngu Mustang bílsins frá fyrsta degi voru ráðamenn Ford Mercury tilbúnir að hella sér út í slaginn á alþýðu sportbíla markaðnum. Þeir vissu þó sem var að nauðsynlegt yrði að gæta þess að höggva ekki í hóp væntanlegra Mustang kaupenda. Bíll þeirra yrði að vera aðeins stærri og betur búinn en Mustanginn og höfða meir til þeirra sem ekki töldust til yngri kaupenda. Ekki var langt að seilast Árið 1967 seldust 150.893 Mercury Cougar bílar
Valentino Rossi ákveðinn
Fimmtudagur, 13. desember 2007 10:37
Valentino Rossi segist ákveðinn í að keppa á MotoGP í nokkur ár í vibót ,hann segist eiga mikið eftir og nauðsynlegt sé fyrir sig að bæta um betur frá keppnisári 2007 en hann endaði í 3 sæti á eftir Casey Stoner og Dani Pedrosa. Rossi sagðist eiga von á að ná meiri hraða á Yamaha hjólinu næsta ár og dekkjaskiptin úr Mitchelin yfir í Bridgestone verði vonandi til þess að jafna bilið sem var milli hans og Casey Stoner . Annars er það að frétta að Stoner sem féll illa á hjóli sínu um mánaðarmótin og meiddist á öxl þarf ekki að fara í aðgerð en hvílir sig heima fram yfir áramót. Capirossi sem var ekki sáttur við að fara frá Ducati er kominn til Suzuki og segist hafa trú á að geta velgt keppinautum sínum undir uggum Suzuki hjólið sé mjög sprækt og gott.
Dodge Charger 1971
Miðvikudagur, 12. desember 2007 07:57
Dodge Charger dró dám að þeirri breytingu sem var að verða á spyrnubílunum,Hemi vélin hélt sínum 425 hestöflum en 440 Six Pack vélin skilaði 385 bhp og 440 vélin skilaði 370 bhp. Chrysler samsteypan var ekki sátt við að skera Hemi kraftinn niður og því var árið 1971 lokaár Hemi vélanna í Dodge Chrysler Löggjafinn kallaði á sparneytnari útgáfur og hestöflum fór fækkandi hjá Af Dodge Charger árgerð1971 seldust 46.183 bílar,
Dodge Charger 1969
Þriðjudagur, 11. desember 2007 07:55
Almenningur hafði tekið vel á móti 68 árgerðinni og því lítil ástæða til mikilla breytinga . En Charger hafði komið vel út á akstursbrautum og var ákveðið að setja tvær nýjar gerðir á markað . Annarsvegar var það Charger 500 en grillið af Coronet bílnum var notað til að aðgreina hann og hinsvegar var Charger Daytona boðinn áhugasömum. Daytona bíllinn var búinn miklum væng að aftan þar sem niðurtog hafði ekki verið sem best og að auki var bíllinn afhentur eftir ósk kaupenda með 440 vélinni eða 426 Hemi. Af Daytona bílnum með Hemi vélinni seldust 503 bílar af Dodge Charger R/T seldust 20.057 bílar .Af Dodge Charger árgerð 1969 seldust alls 69.100 bílar.
Alonso kominn heim
Mánudagur, 10. desember 2007 20:30
Staðfest er af Renault liðinu að samningar hafi tekist við Fernando Alonso um að hann aki fyrir liðið 2008 við hlið hans mun svo Nelsinho Piquet aka. Fisichella og Kovalainen eru því úr leik hjá liðinu. Eflaust hljóta það að vera mikil vonbrigði hversu seint málin hjá Renault og Alonso gengu en ökumenn liðsins 2007 eru nú
Fleiri greinar...
Síða 237 af 246
«FyrstaFyrri231232233234235236237238239240NæstaSíðasta»Statistics
Meðlimir : 27
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921758
Efni : 3990
Vefhlekkir : 6
Innlit : 1921758



